Ég er nývaknaður og var að dreyma rosalegan furðulegan draum, hann var sko þannig að ég var að ferðast um Andalúsíu sem ég hef enga hugmynd hvar er né vissi hvar er! Okey ég var þarna að ferðast á einhverjum jeppa og það var allt rosalega grænt og fagurt nema ég sá rosalega mikin reyk stíga allstaðar upp í fjarska og ég keyrði lengra þá fór ég að sjá rústir bíla og flugvéla sem hafa hrapað og hékk t.d. ein í rafmagnslínu og var í algjöru rústi og var þetta frekar truflandi sjón. En allt í einu þá fór að rigna og það sat maður hjá mér og sagði að ég yrði að gera eitthvað sem ég man ekki alveg hvað það var nema þessi maður var dökkklæddur og var að kenna mér á einhverja hæfileika og allt í einu var ég og þessi maður staddur í einhverju þorpi í Frakklandi held ég og var allt frekar drungalegt og við fórum í eitthvað hús og var verið að sýna gamla mynd sem var svarthvít og við vorum þarna og mér leið eins og ég hefði þekkt manninn núna í mörg ár og treysti honum fullkomlega! Ég man að við vorum í þessu húsi og það var troðið að fólki, frekar ungu fólki. Það leið langur tími þarna og enginn tók eftir okkur og mér fannst það eðlilegt og þá fór ég að hreyfa mig og ég gat hreyft mig mjög undarlega bæði mjög hratt og mjög hægt og ég man að ég fann að ég leitaði að einhverri stelpu og ég fór á einhvað borð og talaði mjög drungalega við einhverja stelpu en samt mjög róandi rödd í mér og síðan leit ég upp og sá stelpuna ganga þarna og gekk ég til hennar og fór “hratt” bakvið hana og hvíslaði einhverju að henni og hún brosti en síðan fór ég aðeins frá henni því ég sá mann með bláar strípur, sítt hár, hring í nefinu og hringlaga tattú og var hann að ýta einhverjum frá sér og hélt að hann væri mikill maður og fór ég til hans og lyfti ég honum upp með einni hendi þegar ég hélt í hálsinn á honum og fleygði honum í gólfið! Varð þá allt brjálað á þessum stað sem var frekar svona klúbbur og kom þá stelpan og reif í mig og sagði mér að koma og ég man að ég skimaði eftir hinum manninum og ég sá hann hvergi nema ég fann fyrir honum einhversstaðar og fór ég þá með stelpunni og vinkonu hennar í einhverjum bíl og lagið sem hljómaði svo fagurt og var þetta svo fallegt lag, eitthvað klassískt og hljómaði bara svo vel og allt í einu þá stoppuðum við og vinkonan sem átti bílin ætlaði út og þá fann ég á mér að hún yrði drepin og sennilega af mér?!? þá vaknaði ég! =(