Um daginn dreymdi mig að litli bróðir minn væri með krabbamein(kom ekki alveg fram HVERNIG) var hræðilegt…var ein heima meðan mamma var í bænum með litla bróður mínum(sem er 12 að verða 13 ára) og pabbi kom heim af og til en var mikið í bænum líka..litli bróðir minn fékk líka stundum að koma heim en stoppaði yfirleitt stutt við og fór aftur veikur í bæinn….. :(
hvað getur þetta eiginlega þýtt?
(sko smá upplýsingar, annar eldri bróðir minn(miðjubarnið eins og ég) var með krabbamein þegar hann var svona 5 ára en það lagaðist) og já ég er alveg vissum að þetta var litli bróðir minn en ekki hinn…
mér fannst þetta sko geðveikt scary og ég myndi alveg vilja fá að vita hvað þetta þýðir ef einhver hefur smá hugmynd…. :/