Jæja.. þetta gerðist fyrir um 1-2árum.

Ég vaknaði og það var dimmt, ég kikti á klukkuna á borðinu við hliðaná mér og hún var þrjú um nótt, þannig að ég ætlaði aftur að fara að sofa en þá heyrði ég einhvað hljóð frammi (hurðin var lokuð í herberginu mínu) ég hélt að þetta væri mamma eða einhver.. en hvað væri hún að gera svona seint um nóttina frammi? Svo byrjar hurðin að opnast í herberginu mínu og ég kallaði: Hver er þarna? en ekkert svar kemur og þá verð ég dauðhræddur og get ekki lengur talað, öskrað né hreyft mig.. Svo sé ég 3 verur ganga inn hægt, þær störðu allar á mig og gengu að mér í rúminu.. ég reyndi að öskra á hjálp eða gera einhvað til að losna við þær en ég gat ekkert gert nema hreyft augun og horft á þær koma nær þangað til að þær voru komin að mér.. en þá vakna ég aftur klukkan hálf 6 um morgunin dauðhræddur.. ég hef ekki getað sofið vél í marga mánuði eftir þetta.

Ég man eftir að þær gengu eins og þau væru fljotandi(skritnar hreyfingar), Naktar, um 150cm á hæð, ekkert hár held ég (var dimmt) Hvít/Grá á litin, Frékar stór augu (veit ekki litinn á auganu, en ég man eftir þegar það starði á mig)

Ég hef lent í svipuðu máli en ekki með sömu verum og ekki eins hræðilegt. Ég veit ekki hvort að þetta hafi verið draumur því ég man allt svo vél, herbergið leit út eins og það er, klukkan á réttum stað.. Hefur einhver lent í svipuðu?
Kv, wolfy.