Það er svolítið langt síðan að ég hef dreymt þennan draum en ég dreymdi hann svona í mánuð og er allveg svaðalega forvitin

Mig dreymir föt sem er í plastpoka úti á palli heima hjá mér í svona tröppum sem liggja niður á pallinn og þar eru íþróttarföt sem eru í honum (pokanum) stuttbuxur bolur nærbuxur sokkar og handklæði??

og svo er það einn minnistæðasti draumur minn mig dreymdi hann þegar ég var pínulítill og við erum að tala um áður en ég varð 6 ára og ég man hann en þá.

þannig er það að ég stóð útí glugga heima hjá mér og var að skoða bílanna sem ég gerði nú stundum (átti heima við umferðamikla götu) en svo kemur skyndilega dráttarbíll sem dregur bíl á eftir sér og það er eldur í honum hann er allveg alelda og dráttarbíllin keyrir bara á fullu áfram.

ef einhver gæti hjálpað mér með þessa drauma væri það allsvakalega gaman

með fyrir fram þökk
KristinnG