Mig vantar smá hjálp ef einhver telur sig geta ráðið eftirfarandi?

Kærustuna mína dreymdi að hún missti tennur.
Fyrst var ein laus en og svo duttu tvær tennur úr henni sem voru alveg ferlega stórar…í raun alltof stórar til að vera úr henni en þær voru það þó! Í heildina missti hún þrjár tennur (sú þriðja var venjuleg) og var að anskotast yfir því í draumnum hversu mikið bil þær skyldu eftir, þegar hún vaknaði :-/

Hvað gæti þetta nú þýtt?

Ég hef verið að skoða mig um á vefnum en ekki fundið neinn góðan stað til að ráða drauma. Vitið þið um einhvern sem vert er að skoða?

Vona að einhver hafi áhuga á að pæla í þessu!

Kveðja,
Ingi
www.facebook.com/teikningi