.. þá er ég hér með draum fyrir ykkur. Ef hann þýðir e-ð at all megið þið tjá ykkur um það…

Allavegana dreymir mig oft telekinesis drauma, þ.e.a.s. mig dreymir að ég geti gert telekinesis. Mig dreymir að ég gangi inn í e-a búð (svona postulínsbúð með fullt af brothættum hlutum). Ég er e-ð að fara að labba í gengnum hana en allt í einu þýtur rauður matardiskur fram hjá mér. Hann flýgur út um alla búð (án þess að klessa á neitt, sem betur fer…) og þessar tvær aðrar manneskjur stara undraðar á hann. Allt í einu fyllist ég eldmóði og langar að láta hann hætta. Ég set hendina út eins og ég sé að fara að grípa hann og öskra á hann: ,,Komdu!" Hann snarstoppar í loftinu og þýtur í hendina á mér. Ég tek á móti honum og líður alveg svakalega vel, því mér tókst að gera telekinesis. Þegar ég vaknaði leið mér ennþá rosalega vel og fór strax að reyna að hreyfa blað á kerti en það er það eina sem ég get.

Fin.