Þetta á kannski ekki við um dulspeki, en það var áðan frétt á mbl.is, þar sem var verið að segja að lítil stelpa hafi troðist undir mannfjölda, sem var að flýja apamann, sem var að ráðast á þorpið þeirra. Apamaður þessi hefur nú þegar ráðist á nokkra íbúa þorpsins á síðustu dögum. Veit einhver eitthvað um þetta eða er þetta bara kjaftæði? Hvar er hægt að fá upplýsingar um þetta?