Mér finnst þessi draumur algjört bull… en eg ákvað að senda hann inn samt sem áður, hann var nefnilega eitthvað svo runverulegur…

Hann byrjaði þannig að ég var inn í einhverri búð… dótbúð eða e-ð sem var verið að opna.. og ég sat í einhverjum sófa, með mömmu minni, litlu systir minni og fullt af einhverju öðru fólki, voru samt allt konur…svo sé ég litla stelpu sem var alein, og ég ákveð að bíða í smástund og sjá hvort mamma hennar komi ekki… og ég bíð en enginn fer og talar við stelpuna þannig að ég ákveð að fara og tala við hana… Þá segist hún ekki vita um mömmu sína en að hún vilji fara að skoða bangsana og ég labba með henni þangað. Allt í einu segist hún vera svöng og ég spyr hvað hún vilji borða… þá segist hún vilja borða bangsann… ég varð ekkert smá hissa en rétti henni bangsann… Þá bítur hún í bangsann og bítur fyrst af honum löppina(ég man að það var löppin.. og það var eins og hún hefði bara skorið löppina af.. ekki eins og einhver hefði bitið..) og borðar hann svo allann (þ.e. bangsann) Svo þegar ég vildi ekki rétta henni annan þá verður hun alveg bráluð og æltlar að ráðast á mig… Ég hleyp í burtu en hún eltir alltaf og enginn hjálpar mér… það halda allir að stelpa sé bara í einhverjum leik og hlæja… En ég er alveg dauðhrædd við hana, en trúi samt ekki að hún hafi gert þetta… En svo einhvernvegin tekst mér að fel mig bakvið mömmu mína og ég segi við hana að ég verði að komast út… Þetta sagði ég nákvæmlega við hana: “Ég geti ekki verið hérna inni lengur… ég veit að það trúiir mér enginn en þessi stelpa er bjáluð, hún ætlar að éta mig, ég verð að komast út!” Þannig að hún ákveður að fara með mig heim, en þegar við komum út og erum að leggja af stað heim munum við allt í einu eftir litlu systir minni sem er ennþá inni og ákveðum að hringja í bróðir minn og láta hann sækja hana… en ég er með engar smá áhyggjur af henni, að þessi brjálaða stelpa geri e-ð við hana… svo kemur bróðir minn og nær í litlu systir mína.. en eg og mamma erum á leiðinni heim… á leiðinni segir mamma mér að hún viti hvernig mér…líði því hún hafi lent í því sama einhverntíman… og hún heldur jafnvel að það hafi verið mamma stelpunnar sem lét svona við hana… því hún hafð séð mömmuna inní búðinni og henni fannst hún kannast við hana… Þegar ég kom heim ligg ég upp í rúmmi og skil eiginlega ekkert í því sem hafi gerst, var þetta draumur eða gerðist þetta í alvörunni… ? Svo “vaknaði” ég stuttu seinna…. en er ekki enþá alveg viss um hvort þetta var bara draumur eða….




<br><br>“You never know what'll happen next - or who it will happen with. All you can do is hope it turns out OK - and that you remember most of it.”