Ég hef alltaf verið öðruvísi. Ég gat oft spáð fyrir um hluti sem gerðust síðan, dreymdi oft inn í framtíðina og sá látið fólk. En það sem gerði útslagið að ég gerðist norn var einn draumur.
Ég var 10 ára og fannst ég alltaf vera öðruvísi. Ég var einfari og leitaði svara annarsstaðar en í guðlegum fræðum. Ég vissi að ég hefði eitthvað sem enginn skildi en gat ekki stjórnað því og eitt kvöldið sagði ég við sjálfa mig: Ef ég á að nota þessa hæfileika þá vil ég fá að sjá einhver tákn þess að ég eigi að nota þau.
Sömu nótt dreymdi mig að ég stæði inni í sal. Salurinn vara allur hvítur en fyrir framan mig stóðu tvennar dyr og voru báðar opnar. Önnur sýndi sólríkan veg og rödd hvíslaði að mér að ef ég veldi þessa leið yrði líf mitt áfallalítið og gott en ég myndi ekki lengur taka eftir yfirnáttúrulegum hlutum. Hinar dyrnar sýndu veg sem var hulinn þoku og grámósku. Vegurinn sjálfur var dökkur og rödd hvíslaði að mér að ef ég veldi þessa leið myndu öll skilningavit opnast og kraftar mínir yrðu miklir, en ég staðinn þyrfti ég að líða fyrir þjáningar heimsins og líf mitt yrði mjög erfitt. Ég sat þarna lengi og velti öllu fyrir mér og á endanum gekk í inn um dyrnar með þokuslæðunni og heyrði hurðina skellast á eftir mér.
Þegar ég vaknaði var ég önnur manneskja, með krafta sem mig hefði ekki órað fyrir. Líf mitt hefur verið mjög erfitt en hef fengið í staðinn líf sem gefur mér svo mikið til baka. Ef ég myndi velja aftur þá myndi ég velja það sama