getur einhver ráðið draum(martröð) sem mig dreymdi?

ok hérna er draumurinn: mig dreymdi að vegurinn fyrir framan húsið mitt væri orðinn af á, ég og besti vinur minn stóðum við ánna og vorum eitthvað að tala saman. Allt í einu hrifsa ég eitthvað af honum sem hann heldur á (man ekki hvað það var) og hrindi honum út í ánna! hann rotast á steini og ég sé hvernig hann liggur dauður í ánni. Eftir nokkra stund þá birtist hann fyrir aftan mig, holdvotur, náfölur í blárri og hvítri lopapeysu og horfir bara á mig með svo illum augum að ég fæ hroll þegar ég hugsa um þau!

einhver sem getur hjálpað mér?!? ég er að sturlast hérna!!==#)=")=