Einu sinni þegar ég var lítill þá var ég nú oftast bara að chilla í vöggunni minni að dunda mér. En stundum þá komu mamma og pabbi að mér þar sem ég sá einhvern mann sem stóð í svörtum frakka og horfi á mig með svona starandi augum. Og ég stóð oftast upp í vöggunni og benti út í loftiðóg sagði manninn manninn, mamma og pabbi voru oft að furða sig á þessu og síðan reyndi ég að troða þeim í skylning að þessi “maður” færi í gegnum hurð á veggnum (þar sem var bara veggur) svo að þau fengu ömmu mína til að koma og gista í herberginu, eftir svona 2 tíma þá kom pabbi hlaupandi eftir að amma var ópandi inni í herberginu mínu, þegar pabbi kom inn í herbergið þá lá vaggan á hlið og ég grátandi á gólfinu, amma sagði við pabba !sérðu manninn sem stendur við vögguna og pabbi … þarna er enginn. Eftir það var ég færður úr þessu herbergi og sá hann að minnsta kosti ekki aftur. En samt sem áður þegar að við fórum í göngutúr (þegar ég var að verða fjagra ára) þá þorði ég aldrei aftur inn í húsið því að ég sá einhvern mann í glugganum á nýja herberginu mínu þótt að það væri enginn heima. Þau þurftu að draga mig ösrkandi og veinandi inn í húsið. Síðar á ævinni 4-5 ára þá var hann að ofsækja mig með því að vera allstaðar í húsinu td. við hliðiná símaborðinu þannig að ég þorði aldrei að svara í símann
en þegar að hann var farinn að ofsækja mig í draumum og öllu þá fannst mömmu og pabba nóG!
við fluttum burt.
Samt hafa árur og illkvittni elt mig alla ævi, ég er 15 núna, stundum vakna ég á nóttunni við að einhver er að hamast á hurðinni og henda blöðum út um allt, og ég get ekki hreyft mig
ég sé að einhver sitji oná mér svona óskýrar útlinur af manni og hann hefur marglita stjörnur í stað augna, þetta gerist svona 2 í viku og hann heldur mér í 1klst í senn,svo þrykkir hann öllum myndum niður af veggunum s.. og margt fleira.
Ég er einn af þeim sem sjá árur og látið fólk nú til dags, ég mundi vilja vita hver þessi maður er, kannski ætti ég að láta særa herbergið mitt?(prests) ef þetta hefur gerst við aðra myndi ég vilja að þeir myndu senda inn einhverjar línur ef þetta verður birt.. P.S þetta er ekkert af því sem ég hef lent í á ævinni..