Mig dreymdi um daginn þennan líka skrýtna draum…

Það fyrsta sem ég man eftir var að ég stend yfir frekar gamalli konu sem er í baði (í fötum, kannski ýtti ég henni ofan í, man ekki). Ég veit ekki fyrr en ég er búin að setja eina hendina mína um munninn á henni og hina um hálsinn á henni og er að ýta henni ofan í, hugsandi að ég verði að drepa hana. Síðan hristi ég hausinn og hugsa að ég megi þetta ekkert og dreg hausinn hennar úr kafi. En þá er eins og hið illa taki aftur við og ég ýti henni aftur í kaf og ég er með þennan svakalega drápssvip og langar virkilega að kála konunni. (ég þekki hana ekkert)
Eftir smá stund hættir hún að sprikla og er greinilega dáin. Þá sleppi ég henni og hið góða í mér tekur við. Ég geri mér grein fyrir því að ég er búin að drepa konuna og hleyp út um allt, biðjandi guð um fyrirgefningu en mig minnir að engin voru svörin áður en ég vaknaði og það tók mig smá stund að átta mig á því að ég drap hana bara í draumi, ég var í sjokki…

Þeir sem nenntu að lesa þetta og skildu þetta, getiði túlkað þetta eitthvað?