Ég ékk 6 í einkunn í heimspekiprófi þessa önn og þetta dreymdi mig í nótt:

Ég var beðin um að taka prófið aftur, og þá var ég búin að gleyma að lesa fyrir það í annað skiptið. Ein sem fékk sömu einkunn og ég, tók það líka en hún var búin að lesa aftur og fékk 8 í einkunn(sko bara í þessum draumi). Kennarinn sat yfir mér og fylgdist með því hvað ég væri að skrifa og það fannst mér svo óþægilegt að ég gat ekki skrifað með einhvern yfir mér!!! Svo hann tók prófið af mér og lét mig ekki hækka í einkunn!!!!!