Ég á mjög erfitt með að lýsa þessum draumi því ég sé hann nákvæmlega fyrir mér, en ég kem ekki orðum að honum.

en svona í meginatriðum þá var ég í stutta náttkjólnum mínum (sem nær varla niður fyrir rass) og ég var að fara eitthvert (ég sé bara hvítt hús) og vil fá að tala við einhvern, man ekki hvort að ég vilji tala við drottningu eða e-ð, en allaveganna þá er þarna maður (svartur maður) sem verður svona ægilega skotinn í mér, eltir mig um allt eins og andarungi á eftir mömmu sinni, hann ætlaði að ná mér, og ég varð hrædd við ..ekki hann.. frekar ákafann í honum. ég var með e-m og ég var svo hrædd! Ég hljóp eins og fætur toguðu heim, en það var annað umhverfi í kringum húsið mitt. Ég var að loka öllum hurðum og gluggum, hljóp út í bílskúr því bílskúrshurðin var opin, og þegar ég var að loka hurðinni kom maðurinn, hann reyndi að teygja sig í mig neðst við gólfið. ég öskraði og hljóp inn. Ég var löðrandi sveitt og þegar inn var komið tók ég eftir því að náttkjóllinn var kominn upp á maga í öllum hamaganginum, og ég var ekki í neinu innanundir. ég fór inn í herbergi þar sem gardínurnar voru fyrir glugganum. ég kíkti út og sá hann labba eftir götunni minni (húsið mitt komið í rétt umhverfi) mjög særðann. Í garðinum voru fullt af skiptinemum og mig langaði svo að fá einn inn á heimilið. ég talaði við bróður minn sem vildi það endilega. Ég hringdi í konuna sem sér um þau mál hér á bæ og ég vaknaði á meðan hún var að finna einhver handa okkur. En ég man að ég sagði við konuna að mig langaði endilega að fá einhverja frá afríku (ég hef verið með skiptinema frá ástralíu) mig langaði að prófa e-ð nýtt, en tók það skýrt fram að það yrði að vera stelpa.

ég man líka að meðan ég var að flýja fór ég inn í hús sem líktist vita, sem ég læsti mig inn í.

þegar ég vaknaði skammaðist ég mín ægilega, því ég fór að hugsa hvort að í undirmeðvitundinni minni væri ég að rækta e-s konar fordóma, sem mér finnst hræðilegt því ég er alls ekki fordómafull manneskja, mér finnst ekkert skemmtilegra en að kynnast fólki sem er með menningu og siði en ég.

ég veit ekki, ætli þetta sé bara einn af þessum bulldraumum, eða ætli þessi hafi þýtt eitthvað?! <br><br>
<A HREF="http://kasmir.hugi.is/kvkhamlet/">skoðaðu þessa</A></FONT>

&&&&&&&&&&&&&&&&&

hvað kostar svona tíkallatyggjó?