Sæl öll, ég hef verið að lenda í frekar óskemmtilegum hlutum að mínu mati undanfarið þótt þetta gæti þótt smávægilegt fyrir ykkur, þannig standa málin að mér finnst alltaf einhver vera horfa yfir öxlina á mér (einmitt núna t.d) og ég finn hárin á bakinu rísa í sífellu og svona kaldan vind/andardrátt á hálsinum, það er svona innbyggður skápur sem er undir súð sem hefur fundist margt eldgamalt drasl, svosem tappar, dagblöð tímarit og þannig.. mér finnst alltaf koma svona vondir ‘straumar’ þaðan eða kannski ekki vondir þarsem ég kann ekkert á þessa dulspeki og veit ekkert um neitt :) en 2 frændur mínir fórust með skipi rétt fyrir jól og ekki tengist þetta þeim neitt ? líkin fundust aldrei.. skipið frá ólafsvík.

Með fyrirfram þökk um góð svör :)
Akai