Góðan daginn

Ég vil byrja á að segja að það er þónokkuð síðan mig dreymdi þennan draum, þannig að ég man hann ekki alveg í smáatriðum, en ég man hann alveg samt.

Draumurinn var þannig að ég var að labba einhversstaðar úti, og það var yfirleitt mjög gott útsýni þar sem ég var. Á eftir mér voru einhversskonar verur, svona beinagrindur, í svörtum stórum jakka, og þær voru svona ca. 30 talsins. Þarna löbbuðu þær alltaf á eftir mér, og þær voru að reyna að ná mér. Ég þurfti að hlaupa undan þeim. Síðan í miðjum draumi vaknaði ég svo alltaf kófsveittur á þeim tíma sem ég var alveg að gefast upp. Ég vaknaði kófsveittur, og alveg drulluhræddur.

Í ykkar augum eru þetta kannski svona barnalegar beinagrindur eins og maður sér í svona barnahrollvekjum eða svoleiðis. En þessar voru ekki þannig, þessar voru ógeðslegar. Þegar þessir draumar áttu sér stað, þá var ég svona 6 ára, og mig dreymdi þá nærri því á hverri einustu nóttu. Allt í einu hætti mig að dreyma þetta í langan tíma, en svo komu þessir draumar aftur seinna. Eftir það hafa þessir draumar verið að koma upp reglulega, með svona árstímabili, og þetta er sko ógeðslegir draumar, þó að lýsingin sé það ekki.

Það er núna þónokkuð síðan mig dreymdi þennan draum, en ég hef það á tilfinningunni að þeir séu að koma aftur.

Ég get látið ykkur vita það að ég er ekki hræddari við neitt í heiminum, en þessa drauma. <br><br>…ahhh, there's my bad mother fucker
Samuel L. Jackson
Pulp Fiction

Badmf