Mig dreymdi að ég ætti bara allt í einu barn!!!!! Ég á ekki barn og engan mann, en allt í einu sat ég á sófa og var að skipta á barni, nýfæddu. Það byrjaði að gráta og ég var í vandræðum með að láta það hætta því ég vissi ekki hvað það vildi og spurði mömmu:“Hvað gæti hún viljað?” (þetta var greinilega stelpa)
mamma sagði:“gefðu henni brjóst, það lekur ´úr brjóstunum á þér” Um leið og hún sagði þetta fann ég eitthvað blautt og peysan hvíta var rennandi blaut af brjóstamjólk úr mér!!!!!!!! Ég man ekki hvort ég fékk áfall eða hvort mér létti við að geta þaggað niður í “dóttur” minni með því að geta gefið henni brjóst.
Ég held að ég hafi vakanð skrýtin á svip, leit þó ekki í spegil :) en samt fannst mér yndislegt að eiga þetta barn og elskaði það, en bara kunni ekki á það!!!!