Ég hef verið að dreyma sömu drauma soldið lengi sem eru alltaf eins.Þessir draumar hafa þó verið alltaf með ágætum tíma á milli sem mig dreymir þá.

Fyrstu draumarnir byrjuðu með því að ég var Súperman, enn sama hvað ég gerði gat ég ekki notað kraftana mína. Ég reyndi og reyndi að hlaupa hratt eins og hann gerir enn það virkaði ekki. Ef einhver hefur séð Spiderman myndina þar sem hann missir kraftana þá var það þannig. Ég er búinn að dreyma nokkra þannig, að ég geti hlupið hratt en náí því aldrei.

Síðan í nótt dreymdi mig furðulegan draum.. En þá dreymdi mig að ég væri vampíra enn væri aðeins með hluta af kröftunum sem þær væru með(miðað við allar vampírumyndirnar) s.s. ég var aðeins hluta til sterkur enn væri ekki búinn að ná þangað sem ég ætti að vera, ásamt öllum hinum kröftunum.

Veit að þetta er illa orðað enn þetta er svona meginmálið af þessum draumum. Getur einhver sagt mér hvað þetta þýðir? Er búinn að vera fá þessa drauma lengi.