Mig dreymdi fyrir fyrir nokkrum vikum að allar tennurnar í mér væru lausar. Ég var mjög skelkuð í draumnum og fannst þetta óþægilegt. Seinna í draumnum uppgövtaði ég að ég gat tekið tennurnar úr mér og fest/smellt þær aftur á sama stað eins og púsluspil. Þetta voru greiniega bara tennur í efri gómi. Allar tennurnar í efri gómi. Draumurinn endaði bara svona. Enginn eiginlegur endir en þegar eg vaknaði um morguninn var mér ekki rótt og fannst þetta meira en óþægilegur draumur.
Draumar fyrir mér hafa sjaldnast haft einhverja merkingu eða ég hef lítið hugsað út í þá. En þennan draum virðist ég ekki geta hægt að hugsa um. svo í fyrri nótt lenti ég aftur í þvi að mig dreymdi að nokkrar tennur mínar í efri gómi aftur voru laflausar. Aftur leið mér ekki vel með þetta en þessi draumur var ekki eins heldur voru aðeins ca. 3 tennur lausar í þetta skiptið og þær enduðu með að ein eða tvær duttu alveg eða brotnuðu og ég gat ekki sett þær aftur í góminn. Þetta fannst mér eins og það hefði verið að minna mig á fyrri draum, impra á honum en nú var eitthvað öðruvísi. Víst að tennurnar voru færri lausar en ég gat ekki fest þær aftur. Þó var þessi draumur ekki jafn ógnvekjandi og hinn fyrri.

Þætti vænt um ef einhver gæti ráðið þennan draum nokkuð skilmerkilega þar sem ég er nokkuð viss að þeir innihaldi skiliboð sem ég þarf að vita sem og þeir tengjast innbyrðis.