Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að setja í titilinn, hvort ég er að réttum stað að spyrja að þessu, en ég ætla allvega að láta vaða.

Til að byrja með, þá er ég ekki mjög djúpt sokkinn í þessar pælingar, og ég hef aldrei séð geimverur og ég er ekki skygn og ég hef ekki fengið skilaboð frá hinum háu, ljóshærðu eða öðrum slíkum verum.
En ég hef mikinn áhuga á þessu subjecti/efni.
Fyrir þá sem vita ekkert um hvað ég er að skrifa hérna þá nenni ég ekki að útskýra það, ég ætla hinsvegar að nefna nokkur nöfn og hluti og þeir sem kannast við það sem ég nefni vita sennilega alveg hvað ég er að pæla.
Ég er búinn að vera skoða þetta efni síðustu 5 ár, þannig ég er búinn að fara yfir mikið af efni og veit sittlítið um þetta.

Vitið þið hvort það eru einhverjir hópar hér á landi sem eru í pælingum / stúdera hvað eigi eftir að gerast 2012 og tíminn eftir 2012.
Jafnvel ef einhver gæti bent mér á vefsíður og spjallsíður á íslensku væri gaman að vita af þeim.
Eða jafnvel hvað maður ætti að kalla þetta á íslensku.


Það sem ég er að tala um er þessi spádómar um 2012, hvað gerist 23. des 2012, annað en tímatal Mayan Indjánanna klárast.
Og þessi setning “The end of Time” sem sumir vilja túlka sem heimsendi, ég les þetta frekar bókstaflega, semsagt endi tímans, það verður ekki lengur eiginlegur tími. Við erum að þróast yfir úr þessum þvívíddarveruleika yfir í fjórðu víddina.
Portal munu opnast, einhver að wormholes, sem sumir túlka sem codeword fyrir svarthol.

Planet X, Nibiru, Annunaki.
Crop Circle´s
Mayan prophecy
David Icke
David Flynn
David Wilcock
Ashayana Deane
Dr Brian O'Leary
Held þetta sé nóg í bili.

Svona til að hafa eitthvað “spennandi” í lokin á þessum pósti:
Miðað við ýmislegt sem hefur gertst í heiminum nýlega, fundist og spádómar sem ég hef lesið þá myndi það ekki koma mér á óvart ef á næstu mánuðum eigi eftir að finnast ósnert gröf með mikilvægum skilaboðum eða sem myndi útksýra eitthvað frá fornum tíma nálægt pýramidunum í Egyptalandi, jafnvel ef það yrði mjög nálægt Sfinksinum.
Ekki bara einhver múmía sem enginn veit hver er heldur gröf sem á eftir að innihalda heilmikil, mikilvæg skilaboð.