mig dreymdi í morgun að ég byggi með kærastanum mínum í stóru húsi, pabbi hans, bróðir og frændi voru í heimsókn og hann var á efri hæðinni að þrífa. og áður höfðum við tekið að okkur hund/úlf, ég fann tengsl við úlfinn og fljótt áttaði ég mig á að hann talaði, samt eins og með huganum og ég heyrði hann segja hluti og svaraði, ég og úlfurinn vorum orðin náin og mér fór að þykja vænt um hann. svo þarna þegar pabbi hans bróðir og frændi eru að horfa á sjónvarðpið henda þeir hundinum/úlfinum úr sófanum og banna honum að vera þar svo hann leggst á gólfið. þegar ég kem vorkenni ég úlfinum og leggst hjá honum og strýk honum og hann kúrir í mig á móti, svo áður en ég veit af heyri ég urr í eyranu og hann bítur snöggt í oxlina á mér og sleppir ekki. ég öskra og öskra en enginn virðist sjá mig og úlfinn né heyra í mér. ég reyni að ýta úlfinum af mér og hann er þá eins og risastór hárlaus mannúlfur, með hendur og klær, beittar tennur og ögrandi augnarráð. kærastinn minn kemur þá labbandi niður stigann og ég öskra og kalla á hann en hann labbar bara framhjá mér rétt eins og hann sjái mig ekki. draumurinn var svo raunverulegur ég trúði að þetta væri að gerast og gat meira að segja hugsað um að þetta væri draumur og ég hafrði áhyggjur af því að ég væri í alvörunni að öskra uppúr draumi, svo hafði ég heyrt að ef þú klípur þig eða bítur í svefni þá vakniru. svo ég beit eins fast og ég gat í tunguna á mér og fann blóðið spýtast úr slagæðinni. síðasta sem ég veit þá er úlfurinn lítandi út eins og kærastinn minn og kyssir mig þá að mér blæði og hann drekkur blóðið. svo vakna ég hliðiná honum með tárin í augunum og hjartað á fullu og hafði greinilega ekki gefið nein merki um að ég hafi fengið martröð né að ég hafi verið sofandi yfir höfuð. ég lá með opin augun eins og stjörf.

er einhver þarna sem gæti sagt mér hvort þetta þýði eitthvað?
ég er búin að vera skjálfandi í allan dag af hræðslu og sjokki eftir drauminn.

-móna.