Sæl verið þið.
Það vill svo til að mig dreymdi nokkuð skondinn draum, eða svo að mér fannst. Og síðan mig dreymdi hann hefur hann verið fastur í mér og hef ég velt því fyrir mér hvað hann þýddi. En hann hljóðar svona:

Ég fer á hestbaki í skólann minn rétt upp úr hádegi og fer inn í skólann á honum. Þegar inn í skólann er komið finn ég vinkonu mína þar sem að vinahópurinn heldur sig vanalega og segi henni að koma upp á bak, að við ætlum í ævintýri.
Hún segir nei og ég svara henni og spyr hversu oft sem það væri að einhver kæmi inn í skóla á hesti og hún endar með því að fara á bak.
Þá förum við úr skólanum og erum á hestinum berbakt, og endum einhverstaðar út í sveit. Allt voða grænt og fallegt, lækur nálægt. Þar endar draumurinn þar sem við fáum okkur að borða á þessum stað og erum í náttúrunni.

Þannig að já, spes en skondinn draumur. :)