um daginn dreymdi besta vinkona mín pabba minn sem er látinn, í hvítum fötum og alveg heilbrigður að tala við hana um hvað ég væri góð stelpa og að hún eigi að passa uppá mig og mamma kom einhver staðar þarna inní man þetta ekki 100%
svo sagði hún mér þetta 2 dögum seinna.

en nýlega hef ég fengið drauma sem tengjast honum, annað hvort úti á bátnum sínum - hann var vélstjóri.
eða uppá spítala að segja seinustu orð hans til mín - en hann lést úr krabbameini 2007.

þýðir þetta eitthvað, er eitthvað sem hann er að reyna að koma á framfæri ?
eða er þetta bara söknuður sem hverfur ekki ..
An eye for an eye makes the whole world blind.