Áhugavert myndband tileinkað Kali Yuga:

http://www.youtube.com/watch?v=WYiTHtwugzc


Hvað er Kali Yuga?

Skilgreining:

Kali Yuga (bókstaflega: „öld Kali“, einnig „öld lasta, ódyggða, hnignunar, spillingar“), er síðasta stigið af þeim fjórum sem heimurinn og siðmenning manna gengur í gegnum samkvæmt yuga hringrásinni sem lýst er í Indverskum helgiritum…Flestar túlkanir á helgiritum hindúismans staðhæfa að heimurinn og mannkynið sé að ganga í gegnum Kali Yuga núna á samtíma okkar.

[...]

Hindúar trúa því að siðmenning manna hnigni á meðan Kali Yuga stendur. Öldin er kölluð „myrka öldin“ eða „járnöldin“ því mannkynið er eins langt frá guðdómnum og það mögulega kemst. Siðferði og réttsýni (Dharma) innan hindúismans er oft sýnt á táknfræðilegan hátt sem tarfur eða naut. Á Satya Yuga, fyrsta stigi eða öld hringrásarinnar hefur nautið fjórar lappir en eftir því sem hvert nýtt yuga gengur í garð dregur úr siðferði og réttsýni, því sverfast fætur nautsins. Á öld Kali, sem á að vera okkar nútíma öld, er réttsýni og siðferðiskennd orðin aðeins fjórðungur af því sem það var á „gullöldinni“ (Satya Yuga), svo dharma-nautið er orðið einfætt.

Einkenni Kali Yuga

Leiðtogar og þjóðhöfðingjar

Þjóðhöfðingjar verða óskynsamir: þeir munu skattleggja ósanngjarnlega og þjóðir verða fjárkúgaðar. Leiðtogar munu ekki lengur álíta það skyldu sína að upphefja andlegan göfga eða verja göfuglyndi: þeir munu verða hættulegir heiminum. Fólksfluttningur milli landa verður yfirdrifin, fólk mun sækjast eftir því að komast til landa í leit að æti og betra lífi þar sem kornmeti og hveiti eru aðal fæðutegundin.

Mannleg samskipti

Fégræðgi og heift taka völdin. Menn munu ekki skeyta um hvorn annan á götum úti og nafnleysi einkennir samskipti manna. Dharma (réttsýni) verður hunsað. Tilgangslaust ofbeldi, fólk mun myrða og misþyrma hvoru öðru án neinnar réttlætanlegrar ástæðu og það mun ekki sjá neitt rangt við að gera slíkt. Losti og hórdómur hljóta félagslega viðtekningu, kynferði og kynlíf verða séð sem miðpunkturinn í lífi fólks, sem leiðir að því að börn allt niður í 16 - 13 ára gömul munu verða þunguð og eignast afkvæmi. Syndir munu aukast veldislega á meðan dygðir og heiður hætta að þrífast og að lokum hverfa. Innantóm loforð, fólk mun lofa upp í ermina á sér aðeins til að svíkja loforð sín strax aftur. Fólk mun misnota vímugefandi drykki og efni. Lærimeistarar (kennarar) munu ekki lengur bera virðingu fyrir nemendum sínum né nemendur fyrir lærimeisturum, nemendur munu reyna að valda lærimeisturum sínum tjóni. Andleg leiðsögn mun verða smánuð og áhangendur karma munu taka vald yfir hugum allra manna.

Samfara ofbeldi og dauða verður fátækt áberandi allstaðar. Menn munu eyðileggja náttúru, drepa tré og engin virðing verður borin fyrir dýrum. Kjötát verður mjög áberandi. Menn munu fyrirlíta störf sín og nota hvert tækifæri til að komast undan skyldum sínum.

http://is.wikipedia.org/wiki/Kali_Yuga