i framhaldi af draum, sem var fullur af börnum,ég vann á leikskóla í draumnum með gamalli skólasystur, var ég skyndilega komin að því er virtist í garð þar sem ég finn 2-3 læður með mis stálpaða kettlinga á spena. Voða sætt og gaman. pabbi var einhvað að þvælast með mér og vildi vikta dýrinn og fólk á nálægum svölum fylgist með, eins og við værum að kvelja dýrinn sem við vorum ekki að gera.
En skyndilega eru læðurnar farnar, bara kettlingarnir eftir og þeim fjölgar og eru minni og erfitt að hafa stjórn á þeim,,,og alltíeinu eru þeir orðnir af músum sem hlaupa yfir mig og mér bregður svo að ég….dett fram úr rúminu og glaðvakna..á gólfinu, og orðið músaplága/faraldur fast í hausnum.
Meiriháttarundarlegt.
Vil taka það fram að ég er ekki hrædd við mýs og man ekki eftir að hafa rúllað fra úr rúminu áður…<br><br>
Jazzy Jez