Ég lagði mig smá aðan, bara yfir daginn. Mér dreymir oftast ekki en ef mér dreymir er það mjög furðulegt.
Allavegana, mér dreymdi að kötturinn minn væri á miðhæðinni heima hjá mér og stæði við horn, hún var með bæði augun en svo sá ég að hægra augað hennar datt út, það bókstaflega bara datt úr. Augasteinninn datt svo af auganu og hún át augasteininn, svo eftir það þá fór hún að leita af auganu og labbaði á veggi, og það var eins og hún hafi verið blind á vinstra auganu líka. Ég tók hægra augað upp og hélt því í lófanum mínum alveg uppvið hana og beið eftir því að hún myndi stinga því inn í sig, sem hún gerði og var þá bara með eitt auga með augastei og hitt alveg hvítt.
Mér leið í draumnum eins og þetta væri bara daglegur hlutur .. Veit einhver hvað þetta getur þýtt ?