Ég gisti hjá vini mínum eina nóttina og við vorum bara að horfa á sjónvarpið svona í rólegheitunum og húsið hans er á tveimur hæðum og stofan er á efri hæðini og inngangurinn á neðri hæðini. Síðan heyrðum við einhvern fara inn stampa svona með blautum stígvélum og setja niður poka og við héldum að þetta væri bara einhver sem við þekktum og vinur minn fór í stigann og leit niður en sá ekki neitt og við vorum bara rólegir og sátumst aftur í sófann og horfðum á sjónvarpið en þá kom einhver aftur inn og stampaði blautum stígvélum setti niður poka og þá var maður nú að vera hræddur og við fórum og kíktum niður enn við sáum ekki neitt og eftir það heyrðum við ekki neitt meir.