Mig langaði að vekja upp umræðu um bænahringi eða heilunnarhringi eða hvað þetta er nú allt saman kallað.

Þannig er mál með vexti að þegar ég bjó fyrir norðan var ég einmitt í svokölluðum bænahring sem hittist 1x í viku og spjallaði saman um andleg mál og heilun. Einnig gerðum við tilraunir með hvaða hæfileika við höfðum, s.s. heilunarorku, hæfileiki til að sjá árur eða hvort við hreinlega sæjum hina framliðnu.

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort einhver hér á huga hefur verið í svona hóp eða sé í svona hóp, og þá hvort það sé einhver möguleiki á að komast að í einum slíkum.

Ég er nefnilega orðin frekar ryðguð í öllu sem snýr að þessum málum og langar að koma mér af stað aftur.
Endilega segið mér frá því ef þið vitið eitthvað um svona mál.

Kv. Sheena