Mig dreymdi að ég væri með nokkrum vinum í Færeyjum. Allt í einu ákveðum við að fara í bíó þar. Allt í lagi með það nema þegar við komum inn í bíóið er mér kippt inn í einhvern hliðarsal einum. Ég sit þar í mestu makindum og býð eftir að myndin byrji. Myndin byrjar og ég skynja að það er eitthvað sem er ekki normal við þetta. Svo kemst ég að því að það er búið að binda mig niður fastan í stólinn og ég, því miður, kemst að því að myndin er vídeó af minni eigin fæðingu. Svo þegar viðbjóðurinn er búinn er mér sleppt fram. Þar sé ég borð með þremur hlutum á. Hníf, skambyssu og pilluboxi. Ég nátturlega í sjokki, tek byssuna og skýt mig í höfuðið. Svo þegar ég vaknaði fannst mér eins og ég væri dáinn..:/

Þetta var mjög skrítin reynsla…