Vildi deila með ykkur skemmtilega reynslu.

Ég var heima og sofnaði niðri sem er btw gamalt og creepy. Ég vaknaði um miðja nótt og fór á neðra baðherbergið. Baðherbergið er þannig að það eru tvær hurðir. Ein hurðinn leiðir aftur út í stofu og hinn inn í geymslu herbergi.

Á meðan ég var á klósettinu var bankað ágætlega kröftulega þrisvar á hurðinna sem leiðir inn á geymslu. Ég hálf sofandi segi bíddu aðeins og þegar ég klára fer ég aftur upp í sófann.

Svo átta ég mig á því að ég er einn heima fyrir utan litlu systur mína sem ég var að passa sem er á efri hæðinni.

Ég gat varla sofið restinna af nóttinni.