ég er búinn að vera dreyma frekar óþæginlega drauma uppá síðkastið , þetta eru svona draumar sem koma þegar ég er á milli svefns og vöku ætla bara segja ykkur frá síðasta draumnum sem mig dreymdi og reyna lýsa þessu sem best fyrir ykkur .

ok það sem ég man að ég er alveg lamaður get ekki talað eða neitt , það var svona svipað erfitt að tala og að lyfta tonni eða eikkað svoleiðis, og ég er í svona mjög fátæku umhverfi mikil veikindi og svona og allt fólkið þarna er svona mjög skrítið svona eins og fólkið í the hills have eyes ef þið hafið séð hana og það bara starði á mig með sona fúlum svip og ég horfði á það , langaði að líta undan langaði að hlaupa í burtu en gat ekkert gert nema bara vera sallarólegur enda lamaður allstaðar og horfa á það meðan það horfði á mig , reyndi að koma orðum uppúr mér en það kom bara eikkað svona muldur svo þegar ég er búinn að finnast mér vera þarna í marga klukkutíma í sömu aðstæðum berst ég við að koma orði uppúr mér ‘' viljiði hleypa mér út’' þá stóð einhver maður upp hélt á mér og labbaði með mig soldið lengi að einhverju ljósi svo þegar við vorum komnir þá vaknaði ég, þetta er bara einn raunverulegasti draumur sem ég hef dreymt og frekar óþæginlegur , fannst eins og ég væri dáinn eða eikkað