Sæl og blessuð. Ég upplifði dálítið undarlegt um daginn.

Ég fór að sofa á sunnudagskveldið og allt gott og blessað með það. Ég var eiginlega sofnaður, kannski eilítið búinn að dotta. Ranka við mér og sný mér á aðra hliðina eins og gengur og gerist og ekkert athugavert við það.

Síðan fer ég að heyra í litlum steinum, vatnsdropum eða glerbrotum falla á stéttina fyrir utan gluggan minn. (tek það fram að koddinn minn er beint fyrir neðan glugga sem ég hef opinn þegar ég sef) Eftir það fer ég að heyra í 2 einstaklingum láta mikið fyrir sér fara þarna nokkrum metrum fyrir utan gluggan. (rífast, flýja eða slást. Man ekki alveg) En fljótlega verður þetta bara einn maður sem ég heyri ganga rakleiðis að glugganum mínum. Hann var með barefli (hamar eða eittvað) sam hann lamdi í vegginn í sífellu og öskraði. Ég man ekki hvort hann var að segja mikið en ég heyrði hann segja HLEYPTU MÉR ÚT!! HLEYPTU MÉR ÚT DJÖFULLINN HAFI ÞAÐ!!. Hann öskrar meira og heldur áfram að berja einhverju í vegginn.

Þetta hvarf eins flótt og það kom. En meðan á þessu stóð lá ég í rúminu mínu og get ekki með nokkru móti hreyft mig. Ég varð alveg gífulega hræddur og þessi ótti stigmagnaðist með hverri sekúntunni sem leið. Hjartað mit sló af þvílíkum krafti. Ég reyndi að hreyfa mig en án árangurs. Þegar þetta var loksins búið, 10 sek. kannski meira kannski minna (fannst þetta ganga á lengur) Þetta leið hjá og gat ég á loks rétt mig við. Ég var alveg 10-15 mín. að jafna mig og koma mér í það að fara aftur að sofa.

Sko. Ég geri mér grein fyrir því að þarna var ég í ástandi þar sem ég var milli svefns og vöku. Þar getur ýmislegt gerst. Þar sem ímyndunarafl getur orðið að raunveruleika o.s.frv(getur útskýrt mikið af tilvikum þar sem einstaklingur segist hafa verið numinn á brott af geimverum t.d) Ég hef nokkrum sinnum náð að nýta mér það. Þegar maður nær að átta sig á þessu þá eru möguleikarnir endalausir. Það getur verið rosalega skemmtilegt.

En þetta hefur ekki komið fyrir mig áður. Algert stjórnleysi og gífulegur ótti. Þetta var rosalega raunverulegt. Þessi “maður” var standandi ekki hálfum metra frá mér og þessi hljóð voru rosalega skýr (vivid)

Einhverjar skoðanir á þessu?

Bætt við 2. júlí 2008 - 02:16
Gleymdi kannski að taka það fram að ég var með opin augun allan tíman.