Mig langaði að forvitast hvort einhver gæti ráðið lauslega í þennan draum sem mig dreymdi í nótt.

Mig dreymdi að ég færi upp á spítala með mömmu og eignaðist þar fallega stelpu án þess að hafa grunað það að ég væri ófrísk (mamma er síðasta manneskjan sem ég vil hafa hjá mér við þessar aðstæður)
Stuttu seinna þá er eins og ég muni ekki meir, sofni bara og þegar ég vakna aftur þá fæ ég þær fréttir að ég hafi eignast aðra stelpu. Mér var eginlega alveg sama og einbeiti mér bara að þeirri eldri og ég reyni ekkert að hafa uppá seinni stelpunni.
Draumurinn endar með því að ég labba út með fyrri stelpuna í fanginu og labba heim vitandi það að ég ætti aðra fallega stelpu inni.

Finnst þetta voðalega skrítið og dreymi ekki oft svona skýrt þannig að ég vildi athuga hvort einhver vissi hvað þetta gæti þýtt. Er ekki ólétt svo það komi fram:)