Þú deyrð. Þegar þú vaknar stendur þú nakinn í miðju ferhyrndu herbergi. Báðum megin við þig eru hurði. Þessar tvær hurðir eru nákvæmlega eins. Önnur hurðin liggur að helvíti en hin til himnaríkis. Þú vilt fara til himnaríkis. Við hvora hurð er maður. Þessir menn eru báðir í hvítum sloppum og þú sérð ekki andlitið á þeim. Annar maðurinn segir alltaf satt en hinn lýgur alltaf. Þú veist ekki hvor maðurinn lýgur og hvor segir satt, þú veist heldur ekki hvaða hurð liggur að helvíti og hvor að himnaríki. Það er þó til spurning sem mun svara því. Þú mátt aðeins spyrja einu sinni og aðeins að einum hlut.

Hver er spurningin?