Ég var að pæla í því hvort það væru einhverjir hér sem vita eitthvað að ráði um heilun. Þannig er nefnilega að ég fór til miðils fyrir svolitilu síðan og þar var mér sagt að ég væri með heilunarhæfileika og að ég ætti að byrja að rækta þá og um leið myndu ýmis vandamál hverfa úr lífi mínu. En svo talaði ég við mann sem veit mikið um þetta og hann sagði að það borgaði sig aldrei að rækta þetta fyrr en maður væri orðin 25-30 ára og væri þar af leiðandi orðin fróðari um lífið, maður hefði upplifað þá sorg þegar sem kemur þegar einhver nálægt manni deyr og fleira. Svo að núna veit ég ekkert hvað ég á að gera.