Jæja ætlaði að athuga hvort einhver gæti ráðið þennan draum sem mig dreymdi í nótt.
Málið er að ég hef verið frekar hrifinn af stelpu sem ég þekki lítið sem ekki neitt, getið lesið allt um það -Hérna-
En allavega, ég fann msnið hennar um daginn og addaði henni og við spjölluðum alveg heilmikið í gær og er eiginlega búinn að vera brosandi hringinn síðan :)

Svo í nótt dreymdi mig að ég hafi “meitt mig” eða eitthvað þannig, og ákvað að fara heim til hennar þar sem mamma hennar er hjúkrunarfræðingur (í alvöru sem sagt). Ég banka og svona og hún kemur til dyra, og sagði strax glaðlega “Hæ *nafniðmitt*” og bauð mér inn. Svo kem ég inn til hennar en man nú ekkert eftir að mamma hennar hafi skoðað mig, heldur fórum bara ég og stelpan að hanga og spjalla saman eins og við hefðum aldrei gert annað.
Svo eftir einhvern tíma þá er okkur sagt að foreldrar hennar ætli að vera með grillveislu þarna heima hjá þeim, og að ég ætti endilega bara að borða með þeim. Ég geri það og svona. Svo förum við tvö út og hittum fullt af fólki sem virðast bara hafa komið þarna uppúr þurru, nokkrir góðir vinir mínir td.
En ég og hún erum alltaf saman þarna (þetta virtist vera einhver samkoma utandyra) eins og við hefðum alltaf þekkst og einhverjir straumar á milli okkar.
Svo segir manneskja sem ég þekki (sem veit btw ekki um tilfinningar mínar til hennar í alvöru) þegar hann sér okkur saman “núnú góður, þú hefur þá kynnst henni og þið bara orðin par” (eða eitthvað í þá áttina). En þá fer hún í baklás og verður öll svona fjarlæg og þannig. Ég fylgi henni aftur heim til hennar áður en ég fer heim, og alltaf er hún mjög fjarlæg, eins og hún fíli ekki að ég sé eitthvað að spá í henni eins og hún komst að þegar manneskjan sagði við okkur að ég hefði tilfinningar til hennar.
Ég verð eitthvað vonsvikinn að hún hafi tekið þessu svona og fer eitthvað að hugsa útí þetta, en samt mjög glaður yfir því hvað við náðum vel saman.

En þá vakna ég. Ennþá brosandi hringinn eftir þetta spjall sem við áttum á msn í gær, og er glaður með að ég hafi kynnst henni svona vel í draumnum, þótt hann hafi ekki endað neitt sérstaklega vel.

En allavega, ég var að spá hvort einhver gæti ráðið þetta, þá sérstaklega hvort þetta þýði að ég og hún verðum aldrei neitt fyrst hún fór öll í baklás í draumnum (ekki það að ég mundi þá bara draga mig í hlé ef draumurinn segði að ég ætti ekki séns, alls ekki) eða hvað þetta þýðir bara yfirhöfuð.
Álit mjög vel þegin, en skítköst vinsamlegast afþökkuð.

Takk :)