Hæhæ

Í nótt dreymdi mér…skrýtinn draum :S Hann er mjög truflandi fyrir mig en samt mjög fyndinn svo þið ættuð að geta skemmt ykkur. Ég hinsvegar er bara að reyna að koma þessu frá mér í von um að þetta gleymist O_0

Mig dreymdi að ég var í einhverju húsi sem ég hafði aldrei séð áður og var ein með einum strák sem vil skulum kalla bara X. Ég þekki þennan strák í raunveruleikanum soldið. Hann er í sama skóla og ég og ég hef eitthvað smá talað við hann annars þekki ég hann ekki neitt.

Jæja..við vorum í þessu húsi og ég vissi að vinir mínir og einhverjir krakkar voru þarna nálægt. (Ekki samt í þessu húsi)

X: ,,Mannstu hvað við gerðum síðanst þegar við vorum hérna…“ *horfir á mig með girnd*
Ég: ,,Já…”
X: ,,Við gætum kanski gert það aftur..“ *horfir á mig með sama svipnum*
Ég: ,,Já..en við fórum samt ekki alla leið..”
X: ,,Ég veit“

Ég hugsa í smá stund og segi síðan: ,,Ok! :)”

Hann leggst upp í rúm og ég klæði mig úr öllu nema nærfötunum. Á meðan liggur hann í rúminu og horfir á mig. Þegar ég er búin að klæða mig úr öllu nema nærfötunum segir hann: ,,ahhh…geturu nokkuð gert eitt fyrir mig? Settu á þig sundhettu..hún er þarna hægra meginn í kommóðuskúffunni"
Við þetta er mómentið eyðilagt, haha þið þurfið ekki að spurja afhverju

Ég: ,,Hva..? Sundhettu?! Ertu algjörlega kynferðislega bilaður eða?
Hann þegir en ég sé að honum er alvara.
Ég fer í herbergi sem er hægra meginn fyrr aftan hann að þessari kommóðuskúffu að leita að þessar sundhettu. Á meðan hugsa ég hversu fáranlegt þetta er og hvað sundhetta er ósexy. Ég fer til hans ferkar pirruð og segi: ,,Ég finn ekki þessa sundhettu..þarf ég að vera með hana?“
X: ,,Geturðu ekki leitað aðeins betur? Hún er þarna í skúffunni”
Ég fer og leita en finn þetta ekki en tek upp stutt gallapils. Hann sér það og segir:
X: ,,Ohh..geturu farið í þetta fyrir mig.“
Ég: ,,okey..ef þú vilt…”
Þegar ég er rétt svo búin að setja ein fót inn í pilsið heyri ég að einhver kemur inn. Mér bregður náttúrulega rosalega mikið. Og dríf mig að klæða mig í pilsið, síðan lít ég á efri hlutan á mér og sé að ég er í hlírabol svo ég þarf ekki að finna neitt í að klæða mig í að ofan.

Ég athuga hver var að koma og það var ein vinkona mín. Hana grunaði samt ekkert hvað var í gangi.

Ég er búin að sjá þennan strák tvisvar núna í skólanum..og það er truflandiO_0 Út af þessum draum. Ég er samt alls ekki neitt hrifin af honum….þoli ekki þegar mig dreymir að ég sé hrifin af einhverjum strákum sem ég er ekki í raun og veru..ruglar mig baraO_0

Ó jæja..vonandi hafið þið notið þessa:P Er samt fyndnara ef þið hefðuð heyrt blæbrigðin hvernig allt var sagt, hehe.


Bætt við 31. janúar 2008 - 13:58
Ó já..ef þið þekkjið mig -Leave me alone please.

:)
An eye for an eye makes the whole world blind