ég og félagi minn vorum staddir einhverstaðar þar sem fyrsti bíllinn varð til og þröngir kjólar með stórum rössum voru í tísku, man ekki hvaðan þeir voru en allavega

ég og félagi minn vorum að ræna stelpu, gegn vilja föður hennar úr veislu, fyrir utan veisluna var skrýtnum vagni parkerað, 2 hestar voru þarna söðlaðir við þennan vagn, við fórum inn og fundum stelpuna(sem var á svipuðum aldri og við), ég missti mig aðeins í veisluföngunum og reyndi eins og ég gat að taka öll hnífapör(úr silfri sem var dýrt þarna) og síðan ákvað ég að reyna að taka smá nesti með, og það skrýtnasta var að ég tók og raðaði jarðaberjum á disk sem var allur út í rjóma :S, greip þetta og eina vínflösku og drullaði mér út, þegar ég kem út(hlaupandi því einhver hafði tekið eftir þessu) voru hestarnir horfnir og stelpan stóð þarna og dansaði, ég sagði henni að hoppa upp í vagninn og síðan fattaði ég að þetta var eitthvað skrýtið, það höfðu aldrei verið hestar og þarna var fullt af stöngum og pedölum og voða flókið eitthvað, ég byrjaði að fikta í þessu öllu og kom okkur á stað og við keyrðum á líklegast fyrsta bílnum sem var smíðaður eitthvað út í skóg, fundum þar lítinn kofa og þegar ég vaknaði þá var ég að reyna að opna kofann
stjórnandi frá fornöld kubbur#2950