Hér er ég með grófa útskýringu á þessu frá sjónarhóli Votta Jehóva.
Fólk ættir að vera u.þ.b. 1 min að lesa þetta


Bara svo fólk viti þá er fagnaðarerindið ríki Guðs á jörð rétt eins og faðir vorið fer með

Matteusarguðspjall 6:10
„til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“

Þetta ríki mun vera bókstafleg stjórn sem mun leiða af sér Eilíft líf og binda enda á þjáningar. Það verður engin öldrun, engir sjúkdómar, ekkert óréttlæti, engin stríð.

Jesaja 25:8
„Hann mun afmá dauðann að eilífu, og hinn alvaldi Drottinn mun þerra tárin af hverri ásjónu,
og svívirðu síns lýðs mun hann burt nema af allri jörðinni, því að Drottinn hefir talað það.“


Opinberun Jóhannesar 21:4
„Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera,
hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið."


Jesaja 2:4
Og hann mun dæma meðal lýðanna og skera úr málum margra þjóða.
Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum.
Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.