Í morgun klukkan 6 þegar ég var úti að reykja fyrstu sígarettuna þá heyrði ég einhvern vera að tala á fullu meira svona eins og hávært hvíst, mjög hratt talað, og ég sá eitthvað í svörtu, og fyrst hélt ég að þetta væri tvær manneskjur að tala saman, og ég var alltaf að reyna að sjá einhverja aðra en það var bara ein. Svo allt í einu þagnaði hún og leit örugglega upp af því að allt í einu sá ég hvítt efst (ekki hvítt eins og húðlitur, hvítt eins og snjór hvítt) Ég var ekki viss hvort þetta væri hnakkinn á verunni eða andlitið en svo lét hún hettu yfir og ég sá enn þetta hvíta og þetta var andlitið og þá varð ég fyrst dauðhrædd af því að hún var þá að horfa á mig og ég fór inn.

En ég er búin að vera að spá í hvað þetta var og hvað þetta var að gera þarna, þetta var ekki nógu stórt til að vera fullorðin manneskja, og þetta var ekki barn, því þetta var ekki barnarödd. En mér finnst þetta mjög spooky, og ég þarf að vakna 6 á morgnana en ég þori því ekki, ef þetta verður þarna aftur og ef þetta yrði kannski hjá mínu húsi og ég myndi sjá þetta face to face, ég myndi fríka út og fá taugaáfall..

Veit einhver hvað þetta gæti verið??

p.s. þetta var samt ekki draugur, það er öðruvísi…