Fyrir stuttu dreymdi mér að íslenskukennarinn minn væri djöfullinn og daginn eftir fékk ég verstu einkunn sem ég hef á ævinni minni fengið. Síðan er annar draumur ég var staddur heima hjá mér og ég hringi í fullt af liði og við förum í bæinn.Við erum kominn í bæinn nema það að þetta er ekki Reykjavík heldur staður í Flórída.Ég geng inn í eina búð og þar er pabbi minn í golfskyrtu að prófa golfkylfur(Hann kann ekki neitt í golfi).Síðan á leiðinni heim þá sé ég að ein stelpan sem við erum með er búinn að lita hárið á sér dökkt(fyrr um daginn hafði sama stelpan sagt mér að hún væri að fara að lita á sér hárið en ég hafði ekki séð það.Daginn eftir var hún með sama lit á hári og mig hafði dreymt) svo endar draumurinn á því að ég kasta fötu af ísköldu vatni á manneskju sem ég þoli ekki. Þessir draumar eru bara þeir nýjustu og veit ég um fjölmörg önnur dæmi.<br><br>Jiang Taimao
Lifi funk-listinn