Ég er nývöknuð, mig var semsagt að dreyma draum áðan.
Mig er buíð að vera að dreyma soldið mikið uppá síðkastið, og það í sambandi við kærasta minn.
Að ég fari í fílu við hann og eitthvað.

Allavega núna var mig að dreyma eitthvað að ég er að rífast við hann, hann er búinn að vera fullur og alltaf utan í öðrum stelpum, ég sýni honum mynd af sér sitjandi í sófa við hliðiná einni stelpu sem ég þekki (þessi stelpa er sú sem minn fyrrverandi hélt framhjá mér með rétt fyrir áramótin)
Anywhoo ég er eitthvað að tuða og hann er auðvitað miður sín og eila man ekki eftir þessu. Svo fer ég.
Draumurinn skiptist yfir í allt annað, ég er á leiðinni upp eitthvað fjall/hlíð eða eitthvað, í bíl með systur minns núverandi á bíl og eigum í erfiðleikum með að komast upp, en við komumst. Og komum í eldgamlan kirkjugarð. MJÖG gamall.
Það er hellingur af fólki þarna, við grafir og svo eitthvað þarna að spjalla saman, ég þekki slatta af þessu fólki.

Það er allt voðalega grátt og hrörlegt þarna.
Sumt fólkið þarna er að fá bíla, og ég þar með einn.
Ég fæ gamaldags bíl, í einhverskonar “brynju”, svart á litið. Hinir erum á svona mismunandi druslum og svo flottir bílar þarna líka.
Á leiðinni að bílnum stoppa ég og er að lýta til vinstri og er að leita að einhverri sérstakri gröf, sem átti að tilheyra afa mömmu minnar eða eitthvað, einhvers ættingja, ég held að ég hafi rekist á legsteininn með augunum með einhverju nafni (man því miður ekki hvað) en svo held ég áfram og fer uppí bíl. Allir eru að fara eitthvert. Við leggjum af stað og svo man ég ekki meir því ég vakna.

Ég er frekar sveitt og líður mjög illa í sambandi við kærasta minn, er óörugg.

Það vill svo til að ég er nýkomin með bílpróf :)
Og ég er að fara í dag með bróður mínum á bílasölur í dag að finna bíl og kaupa.

Hvað gæti þetta táknað? er þetta einhver aðvörun. Ég verð svo fegin að fá svör, bara eitthvað, hugmyndir? Ég er mjög áhyggjufull út af einhverju?

Táknar þetta bílslys eða dauða?
Heldur kærastinn framhjá mér?

Bara eitthvað. Takk æðislega fyrir að lesa :*
Ég þarf ráðningu.

Kv: Lúthien
Honey! Get mommy's Bazooka!