Já, þetta er svosem langavitlausa, enginn leið að botna drauminn en ef einhver vissi hvað viss atriði tákna samkvæmt draumaráðningum…

Var semsagt mjög heitur dagur á íslandi, reykjavík, MJÖG!
Ég var staddur á mjög stórri hátíð, furða mig á öllum þeim fjölda sem þar var samankominn á þessu litla landi…ég sá fullt af kunningjum, kunnuglegu fólki sem ég mundi ekki hvaðan ég hafði séð áður…það var í rauninni það heitt að snákur höfðu komið sér fyrir í grasinu, 7 sinnum stökk snákur að mér og beit og hékk í mér, ég greip um munnin á honum, lokaði og fleygði þeim frá mér í sífellu… í lok draumsins langaði mér svakalega í ís, ásamt fleirum, sáum ísbúð opna, ég náði að vera fremstur og sagði hvað ég vildi en afgreiðslukonan sagði: Því miður, sú tegund og allar aðrar eru búnar, svo enginn ís! Þá vaknaði ég…

Eitthvað hægt að botna í vissum atriðum í honum, einsog með hvað snákur táknar í draumi??
—————

Ég er reyndar með um annan, sem ég tel áhugaverðari pælingu….er nefnilega mál með vexti, ég hef verið að tala eitthvað við kanadíska stelpu mikið á netinu, eina nóttina dreymti ég kynlífsdraum um hana, þótti það fyndið og sagði henni frá því, hún hló og sagðist hafa dreymt einn um mig nóttina áður en ég dreymdi um hana….er þetta bara ein stór tilviljun? Er náttúrulega það sem mér dettur helst í hug en vil heyra fleiri álit en mitt eigið….
————–