Já ég er nýr á þessu áhugamáli /dulspeki og ætla deila smá draum eða að ég held að þetta hafi verið draumur.

Það er mál með vexti að ég fer að sofa nýbúinn að horfa á skugglega mynd sem nefnist The Fountain með Hugh Jackman alveg skelfilegasta mynd í heimi en nóg með það.

Ég fer að sofa kl svona 2 um nóttu, svo þegar ég er sofnaður þá finnst mér ég hrökkva bara mjög við eins og ég sé vakandi þá liggur eitthvað risa stórt svart og þungt flykki sem er mjög loðið og heitt. ( Þetta gerðist allt saman fyrir svona 1 viku ).

Svo núna í dag snerti ég dauða bjöllu sem var í kóngulóar vef. Vissi það samt ekki strax og það var lítil svört bjalla, ég snerti hana og ég gjörsamlega varð ógeðslega hræddur og fékk skrítna tilfinningu eins og ég væri bara gjörsamlega að lamast.

ATH - ég er ALDREI Hræddur við býflugur eða önnur dýr/skordýr.

Svo aftur sá ég risa stóran svartan hund sem virtist vera mjög grimmur í húsinu við hliðina á mér og hann gelti á mig. Enn og aftur varð ég mjög hræddur eins og við bjölluna sem ég snerti fyrr í dag.

Í gærnótt hrekk ég aftur við að það sé stórt, loðið og heitt kvikindi ofan á mér. Svo á meðan það er ofan á mér sofna ég og heyri síðan svona hljóð eins og milljón bjöllur séu að labba á parketti og ekki nóg með það er hundur að urra kvikindslega og að gelta ógeðslega hátt.

ATH - Ég á ekki hund né neitt annað gæludýr.

Þetta hljómar ruglingslegt þegar ég reyni að útskýra en ég held að ‘Main point’ sé að ég sé hræddur við svört frumbæri. En það skrýtnasta við allt saman er að systir mín sem er 34 ára gömul fékk sama draum og í fyrra skiptið hjá mér.

Mér finnst þetta allt vera mjög skrítið og ég held að ég sé ekkert klikkaður :)

Takk, Alex.