ok, mer dreymdi þennan frekar truflandi draum og langar að vita hvort eitthver hérna geti ráðið hann.

Mér dreymdi að ég með 2 bestu vinum mínum í rútu og við komum að eitthverju hóteli eða gistihús , húsið var mjög stórt og gamalt og umhverfið er allt dimmt og svo er ég að sækja farangurinn minn eða eitthvað svo sé ég að vinir mínir eru farnir inn og hafa skilið mig eftir.
Ég fer inn í hótelið og er að leita af þeim og er ég er búinn að leita lengi er ég kominn á efstu hæð í svona eitthverskonar ris og þar eru 2 stelpur.
Öll ljós eru slökkt hjá þeim nema eitthvað kerti sem þær eru með . Ég stoppa eitthvað aðeins hjá þeim og svo allt í einu slökkva þær ljósið eða ég verði blindur og ég verð ótrúlega hræddur og er að reyna að þreifa mig áfram og skil ekkert hvar ég er og er í algjöru panici. Síðan er ég kominn í eitthvern stiga sem leiðir niður og ég sé smá ljós en er enþá mjög hræddur og svo sé ég besta vin minn.
Ég reyni af öllum lífs og sálarkröftum að kalla á hann til að koma til mín og hjálpa mér en ég get ekki öskrað hátt útaf ég er svo hræddur og hann sér mig í smá stund en labbar svo bara framhjá meðan ég enþá að skíta í mig úr hræðslu og þarfnast hans rosalega mikið.
Allur draumurinn var svona dimmur og myrkur.
Eftir þetta vaknaði ég með ofsalegan hjartslátt og var mikið að hugsa um draumin næstu daga,
getur eitthver ráðið í hann eða merkir hann ekkert?
kv. 5years