Sælir hugarar.
Ég trúi ekki á draumaráðningu eða slíkt en mig langar að vita hvað þið hafið að segja um drauma sem mig er búið að dreyma frekar oft.
Mig dreymir semsagt oft að ég sé að missa tönn. Nánartiltekið framtönn. Þetta er mjög óþægilegt og er yfirleitt þannig að ég finn að hún er að losna og ýti þá á hana með tungunni og þá molnar hún og dettur úr.
Vona að þið hafið eitthvað um þetta að segja.

kv.Herra Heiðursmaðu