Þar sem litlu smáatriðin skipta oft máli reyndi ég að hafa sem flest þeirra með ef ekki öll sem ég man.



Draumurinn gerist inní rauðum jeppa, átta mig ekki á því hvernig tegund en myndi næstum þekkja hann aftur, ég sat í aftursætinu og bræður mínir voru frammí. Sá eldri var að keyra (en sá er slasaður þannig að hann getur ekki keyrt eins og er í real live) hinn var í farþegasætinu, honum og mér kemur almennt mjög illa saman, löng saga…

Það var dimmt og skuggalegt úti, auk þess að það var nokkuð hvasst. Við keyrðum framhjá drullusvaði og ég bennti þangað og sagðist hér hafa einhverntíman farið útaf og einhvert lengst útí móa, meira man ég ekki af samræðunum í bílnum ef þær voru einhverjar.

Skyndilega opnaðist skottið, sem var eins og hurð opnaðist og tók á sig mikinn vind og bíllinn snérist, bræður mínir stukku báðir út til að loka dyrunum af skottinu, en afturí hjá mér voru barnalæsingar svo ég var föst. En það gleymdist að loka dyrunum bílstjóra meigin og bíllinn fauk nú í hina áttina og svo af stað, ég hennti mér milli sætanna og ætlaði að grípa í handbremsuna en hún reyndist fyrir vera á. Bræður mínir fóru nú að reyna að ná bílnum og stoppa hann sem tókst fljótlega en þá vorum við komin að opinni hlöðu með einhverju drasli í sem nokkuð greinilega hafði verið brotist inn í. Allt í einu var logn eða nálægt því.

Þá byrtust alveg slatti af lögreglubílum og umkringdu okkur, inn í bílinn braust þessi stóri brjálaði lögreglumaður að mér sýndist svartur en myrkrið gæti hafa villt fyrir mér. Hann öskraði eitthvað óskiljanlegt og bróðir minn kveikti á zippokveikjara, sem kallinn tók og lýsti framan í bræður mína en virtist ekki sáttur, sá svo mig lýsti sleppti kveikjaranum og greip í mig, það var greinilega ég sem hann var að leita að á svipnum að dæma, þarna fann ég brennadi tilfinningu milli brjósta upp að hálsi og brá svo við snöggt grip löggunnar að ég vaknaði í sjokki með hjartslátt á miljón.


Síðan þá hefur þessi draumur verið að angra mig, er einhver hérna sem treystir sér í að ráða hann fyrir mig? Allavega einhvern part?
What is home again?