Okei, síðustu daga þá hefur það verið soldið mikið í umræðunni hjá mér og nokkrum vinum mínum að fara og fá okkur að reykja hass. Vinir mínir eru vanir þessu en ekki ég. En mig langar að prófa.

Fyrir nokkrum dögum þá dreymdi mig að ég hefði verið að reykja hass úr pípum sem vinur minn átti (þær voru bleikar og voru margar í röð á einhverju túni í þúfunum, þetta var samt eðlilegt í draumnum haha), en ég náði aldrei reyknum einhvernveginn og varð ekkert skakkur þó að vinur minn yrði það.

Svo í sama draumi dreymdi mig að ég væri á rúntinum með vinum mínum, við vorum þrír aftur í og ég var lengst til hægri, svo var bílstjórinn að keyra og allt voru þetta vinir mínir nema einn gaur sem var í farþegasætinu framí. Ég þekkti hann ekki neitt.

Síðan tekur þessi sem ég þekkti ekkert upp hasspípu og hass og byrjar að kveikja sér í, hann réttir vinum mínum og þeir fá sér allir og láta hann svo fá pípuna, hann fær sér pínu og ætlar svo að rétta mér og rétt áður en ég tók við pípunni, þegar hún var bara aðeins fyrir ofan hendurnar og ég var að taka við henni úr höndunum hans, þá keyrðum við útaf og þá vaknaði ég. Og þetta var ekkert eitthvað rétt útaf heldur negldum við útaf og lentum í alvarlegu slysi.

Ég man ekki oft drauma en ég man þennan og ég veit ekkert hvað þetta á að þýða svo ég spyr ykkur professionals, hvað haldiði að þetta þýði?