Ja ég veit ekki hvort þetta eigi heima hérna en ég læt það flakka samt. Þannig er að hérna á heimilinu hefur verið umræða um hryðjuverkin í USA og stríðið við Afganistan. Einnig hefur sonur minn verið að spá í Nostradamus og við höfum verið að ræða hann. Svo ef ég fer að leggja saman það sem er að gerast í heiminum í dag og pælingar úr Nostradamus þá kemst maður að þeirri niðurstöðu að Osama Bin Laden sé ekkert annað en Antikristur sjálfur. Hvað finnst öðrum hérna um þetta mál ? Er fólk almennt sammála mér með þetta ?