Mér hefur verið sagt svo og veit ég ekki sjálfur hverju skal trúa. Það sem mig dreymdi í nótt er gott dæmi.
Mig dreymdi að systir mín kom til mín og bað mig um að líta á tölvuna sína því að hún var svo hæg. Ég gerði það og komst að því að hún átti aðeins 95 mb laus á harða disknum.
Þegar ég vakna í hádeginu og fer inn til hennar, þá spyr ég að gamni mínu hversu mikið diskpláss hún væri með, og viti menn, hún var með 95,9 mb laus! Ég fraus. Ég sagði henni að fara að eyða öllu óþarfa drasli strax ef hún vildi ekki að tölvan sín væri svona hæg.

Seinni draumurinn var öðruvísi.
Mig dreymdi að mamma og pabbi hefðu verið með eina tölu rétta í lottó-inu og höfðu unnið 8000 kr.
Þegar ég vakna hafði pabbi fengið heim í póst bréf frá bankanum sem hann er í. Ég veit ekki alveg hvað það var, það tengdist eitthvað vöxtum og einhverju svona ‘banka-stuff-i’. Hann hafði fengið rúmar 8000 kr. “gefins” frá bankanum. Ég skildi þetta þannig allavega.


En já… gaman af þessu =) Er ég berdreyminn?